Sport

Óðinn og Ásdís verða með í Dalnum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásdís Hjálmsdóttir er nýkomin heim frá Brasilíu.Fréttablaðið/anton
Ásdís Hjálmsdóttir er nýkomin heim frá Brasilíu.Fréttablaðið/anton
Ólympíufararnir Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH og Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni verða bæði með á JJ móti Ármanns fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld, Óðinn í kúluvarpi karla og Ásdís í spjótkasti kvenna.

Mótið er annað mótið af sex í mótaröð FRÍ árið 2012. Keppt er til stiga á mótunum og munu sigurvegarar stigakeppninnar að lokum fá flugmiða í verðlaun.

Óðinn og Ásdís hefja keppni klukkan sjö í kvöld en mótið stendur frá 18.20 til 20.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×