Samstarf

Stærsta fasteignasala Reykjavíkur

Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar og eigendur Fasteignasölunnar Mikluborgar.
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar og eigendur Fasteignasölunnar Mikluborgar. mynd/gva
Það væri hverjum fasteignasala hollt að kaupa og selja fasteign sína einu sinni á ári. Fasteignakaup eru enda í flestum tilvikum stærsta ákvörðun sem við tökum í lífi okkar og mikil rússíbanareið á meðan viðskiptunum stendur. Því skiptir miklu máli að viðskiptavinurinn velkist ekki í vafa um að honum sé vel sinnt og að honum líði vel í viðskiptunum,“ segir Óskar á Mikluborg.

Fasteignasalan Miklaborg er sú stærsta í höfuðborginni. Þar starfar sterk og öflug liðsheild fimmtán starfsmanna.

„Fasteignasala má sín lítils án góðs starfsfólks. Hér starfa reynslumiklir, góðir og áhugasamir sölumenn sem taka starf sitt alvarlega,“ upplýsir Óskar.

Auk mannauðsins segir Óskar styrk og vöxt Mikluborgar byggja á alúðlegri þjónustu við viðskiptavini, skýrum verkferlum og áherslu á gæðavinnu til að kynna bæði fasteignir og fyrirtækið. „Það er einfaldlega ekki nóg að skrá eign á sölu og vona að vindurinn blási í rétta átt. Það verður að nýta alla tæknimöguleika sem í boði eru svo kynna megi eignina fyrir sem breiðastan hóp. Því þurfa seljendur að vanda valið vel áður en þeir setja eignir sínar á sölu.“

Óskar segir meginþorra íslenskra fasteignasala smáar í sniðum og þar sé óhægara um vik að koma eignum á framfæri eða finna draumaeignina.

„Húseigendur vilja allir að eign þeirra nái til sem flestra og leita því til okkar. Miklaborg er með stærsta framboð eigna á skrá og var fyrst til að bjóða upp á „innlit“ í eignir, þar sem hægt er að valsa um á netinu og skoða hvern krók og kima. Heimasíðan er alltaf vel uppfærð og aðgengileg og sölumenn leggja áherslu á að ná góðum tengslum við kaupendur til að ná enn betur að hjálpa þeim við að finna draumaeignina.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×