Samstarf

Stærsta skónetverslun landsins

Marín Manda segir viðskiptavini Skor.is njóta ýmissa kjara.
Marín Manda segir viðskiptavini Skor.is njóta ýmissa kjara. mynd/gva
Skor.is er ein stærsta skóverslun landsins þar sem hægt er að kaupa skófatnað á alla fjölskylduna á einu augabragði, hvar og hvenær sem er. Marín Manda Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri skor.is ,veit allt um málið.

„Við erum með í kringum fjörutíu vönduð vörumerki í skóm og allt að 3.000 „stæla" og flotta fylgihluti sem taka breytingum yfir árið í takt við strauma og stefnur í tísku," útskýrir Marín Manda og segir fjölbreytt vöruúrval sótt í skóverslanir í eigu sömu aðila.

„Kaupfélagið, Steinar Waage, Ecco-búðirnar og Toppskórinn og auðvitað Skor.is."

Sérstaka athygli vekja þau fjölmörgu þekktu skómerki sem bjóðast á síðunni. „Já, hérna fæst raunverulega allt sem hugurinn girnist, allt frá Six Mix og Ecco upp í sportvörumerki á borð við Nike, Adidas og Puma. Við erum meira að segja með íslensk merki eins og Mörtu Johnson. Og þetta eru skór við öll tilefni hvort heldur til hversdagsnota, við hátíðleg tilefni, til íþróttaiðkunar eða annað," segir hún.

Og ekki skemmir fyrir sanngjarnt verð og alls kyns krassandi tilboð sem Marín Manda segir einn af mörgum kostum þess að halda úti vefverslun á borð við skor.is. „Yfirbyggingin er minni en í venjulegum verslunarrekstri og útlagður kostnaður lægri og fyrir vikið getum við boðið skóna á betra verði," segir hún en tekur fram að þetta fyrirkomulag komi þó á engan hátt niður á þjónustunni.

„Þvert á móti leggjum við okkur fram við að veita viðskiptavinum okkar persónulega þjónustu. Til marks um það svörum við e-mail á öllum tímum sólarhringsins. Enda annar plús við viðskipti á netinu sá að hægt er að gefa sér góðan tíma til að skoða úrvalið í ró og næði, eiginlega hvar og hvenær sem er, sem sparar manni líka tíma og fyrirhöfn," bendir Marín Manda á.

„Þetta auðveldar manni lífið!" Þegar vörukaupin eru frágengin á heimasíðunni ganga hlutirnir fljótt fyrir sig að hennar sögn. „Yfirleitt tekur aðeins á bilinu einn til tvo daga að fá skóna senda heim. Viðkomandi gefur upp farsímanúmer þegar hann gerir kaupin og pósturinn sendir textaskilaboð þegar sendingin fer af stað. Þannig að vörurnar berast með skjótum og öruggum hætti."

En hvernig snýr viðkomandi sér langi hann til að skila vörum?

„Heyrðu, það er nú sáraeinfalt. Hann kíkir þá bara í eina af verslunum okkar og fær annað hvort að skipta eða inneignarnótu. Við tökum vel á móti honum," svarar hún og brosir.

Þá segir Marín Manda meðlimi netklúbbs skor.is njóta sérstakra kjara. „Við dekrum alveg við þá, þeir fá reglulega póst með alls kyns spennandi tilboðum, stundum fría heimsendingu, gjafir og fleira, en skráning fer fram á heimasíðunni."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×