Lífið

Óþekkjanleg í hlutverki Hildar Lífar í Skaupinu

Anna Gunndís Guðmundsdóttir sló í gegn sem Hildur Líf í Áramótaskaupinu. Fréttablaðið/Stefán
Anna Gunndís Guðmundsdóttir sló í gegn sem Hildur Líf í Áramótaskaupinu. Fréttablaðið/Stefán
„Ég tók smá tíma í að æfa þetta," segir Anna Gunndís Guðmundsdóttir, eða Dunda, sem sló í gegn sem glamúrgellan Hildur Líf í Áramótaskaupinu.

Spurð hvernig hún hafi sett sig í karakter segist hún aðallega hafa stuðst við viðtal sem Nilli tók við Hildi Líf í sjónvarpsþættinum Týnda kynslóðin. „Það var eina tengingin sem ég var með og svo bara ljósmyndir. Síðan var ég að vinna með frábærum leikstjóra og búningahönnuði og meistara Rögnu Fossberg, þannig að ég fékk gott gervi," segir Dunda, sem var með einar sokkabuxur undir hvoru brjóstinu til að ná útliti Hildar Lífar betur.

Dunda er í eðli sínu dökkhærð en var með aflitað hár í Skaupinu. „Það var aflitað fyrir sýningu í Salsburg í Austurríki í sumar. Eftir það fór ég að leika hjá Leikfélagi Akureyrar í haust og þau vildu endilega halda þessu," segir hún og á við leikritið Svarta kómedían. „Svo hoppaði ég inn í Hildi Líf og núna er ég orðin dökkhærð fyrir næsta verkefni." Það er kvikmyndin Frost í leikstjórn Reynis Lyngdal og hefjast tökur 9. janúar á Langjökli.

Aðspurð segist Dunda hafa fengið góð viðbrögð við frammistöðu sinni í Skaupinu. „Mamma reyndar þekkti mig ekki og ekki heldur margir af mínum nánustu vinum. Ég ákvað að segja engum frá þessu, þannig að þetta kom fullt af fólki á óvart." Sjálf segist hún ekkert þekkja Hildi Líf og getur því ekki borið saman persónuleika þeirra beggja. „Ég er ekki alveg dómbær á það."

Dunda, sem útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands 2010, kveðst alveg vera til í að leika aftur í Skaupinu. „Ég myndi hiklaust gera það. Það var æðislegt að fá að taka þátt í þessu." freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×