Lífið

Annasamt ár 2012 hjá Bieber

Smelltu á mynd til að skoða albúmið.
Smelltu á mynd til að skoða albúmið. Myndir/Cover media
Poppstjarnan Justin Bieber fékk sér nýtt húðflúr á árinu og var sektaður fyrir of hraðan akstur. Drengurinn átti góðar stundir með Selenu Gomez unnustu sinni en þau hnakkrifust að sama skapi. Þá var Justin áberandi á slúðursíðum vestan hafs síðari hluta ársins eftir að hann var hrókur alls fagnaðar baksviðs í kringum fyrirsæturnar á árlegri undirfatasýningu Victoria´s Secret.
Justin fékk sér nýtt húðflúr af andliti Jesú á vinstri kálfann í janúar.
Mikið rétt Justin fékk nokkrar hraðasektir á árinu. Hér má sjá poppstjörnuna á einum af bílunum hans eftir að lögreglan stoppaði hana á allt of miklum hraða.
Þegar allt lék í lyndi með Selenu Gomez í byrjun ársins. Þau rifust heiftarlega á veitingahúsi í nóvember á þessu ári.
Hér er Justin með Paris Jackson í byrjun ársins. Um var að ræða minningarathöfn til heiðurs föður hennar Michael Jackson.
Slúðurheimurinn vestan hafs logaði þegar Justin bauð fyrirsætunni Barbara Palvin, 18 ára, með sér á Lion King eftir að þau kynntust baksviðs á árlegri sýningu Victoria's Secret .





Fleiri fréttir

Sjá meira


×