Tíska og hönnun

Hátíska í bland við ódýran gæðafatnað

Eigendur GK, þau Ása Ninna og Guðmundur.
Eigendur GK, þau Ása Ninna og Guðmundur. Myndir/Daníel Rúnarsson
Á annað hundruð manns komu saman í tískuversluninni GK í vikunni. Tilefnið var frumsýning þriggja nýrra hátískumerkja; Stella McCartney, mcq frá Alexander McQueen og mm6 by Maison Martin Margiela.

Tískuáhugamenn hafa beðið merkjanna með mikilli eftirvæntingu en um skó, töskur og fatnað er að ræða. Verslunin hefur lagt mikið upp úr því undanfarið að bjóða upp á annars vegar hátísku fatnað og hins vegar ódýr gæðamerki.

Eigendurnir þau Ása Ninna og Guðmundur voru að vonum afar ánægð með kvöldið og segja nú loksins alla geta fundið eitthvað við sitt hæfi í versluninni. fleirri nýjunga er að vænta í Gk, en meðal þeirra er ný og spennandi undirfatalína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×