Innlent

Ólafur Ragnar: Fólkið vill öryggi

http://visir.is/section/MEDIA99&fileid=LVE4&stream=st2 skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson og Ari Trausti Guðmundsson eru á öndverðri skoðun.
Ólafur Ragnar Grímsson og Ari Trausti Guðmundsson eru á öndverðri skoðun.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Andrea Ólafsdóttir eru sammála um það að fólk hugsi um öryggi þegar það lítur til framtíðar. Þá vilji það fá tækifæri til þess að nýta málskotsrétt forsetans áfram. „Þannig túlka ég niðurstöður skoðanakannana," sagði Andrea Ólafsdóttir í sjónvarpskappræðum í Hörpu.

Ólafur Ragnar Grímsson tók í svipaðan streng. „Icesave málið, burtséð frá efnisatriðum þessa máls, var mikil sýnikennsla í nýjum lýðræðisháttum á Ísland. Það er mikil krafa um að haldið verði áfram á þeirri braut," sagði Ólafur. Hann sagðist jafnframt vera þeirrar skoðunar, og hafi verið það um árabil, að ákveðið hlutfall þjóðarinnar ætti að geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um ýmis mál.

Ari Trausti Guðmundsson sagðist hins vegar ekki telja að málskotsrétturinn brenni mikið á fólki. Fólk myndi ekki nota málskotsréttinn á hverju ári. Það væru aftur á móti ákveðin mál, eins og aðildin að Evrópusambandinu eða gjáin á milli landsbyggðar og höfuðborgarinnar, sem brenni á fólki en einnig velti fólk mikið fyrir sér undirliggjandi hlutverki forsetans. Hvort hann ætti að vera pólitískur eða umboðsmaður allrar þjóðarinnar.

Hannes sagði að málskotsrétturinn væri hins vegar umræða sem hefði verið blásin mikið upp í fjölmiðlum. Hins vegar væri fólk mikið að hringja í sig og lýsa aðstæðum sínum. Það væri lítið búið að gera til að leiðrétta skuldir fólks og fleira slíkt. Það sé ekki búið að gera upp hrunið nægilega vel.

Herdís Þorgeirsdóttir sagði að það þyrfti fyrst og fremst að endurvinna traust á stjórnvöldum.

Þóra Arnórsdóttir sagði að fólk vildi helst ræða um stöðu og framtíð þjóðarinnar. „Ég upplifi ekki þennan mikla ótta eða óvissu við framtíðina," sagði Þóra og vísaði þar í orð Ólafs Ragnars Grímssonar um að fólk væri að kjósa öryggi. „Það er mikil eftirspurn eftir jákvæðri umræðu," sagði Þóra



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×