Tónlist

Vasadiskó: Heiðar spilaði Botnleðju lagið Fallhlíf

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Heiðar tók forskot á Botnleðju sæluna og spilaði lagið Fallhlíf órafmagnað í útvarpsþættinum Vasadiskó.
Heiðar tók forskot á Botnleðju sæluna og spilaði lagið Fallhlíf órafmagnað í útvarpsþættinum Vasadiskó.
Rokkáhugamenn bíða eflaust með öndina í hálsinum yfir endurkomu sveitarinnar Botnleðja, sem ríður á vaðið á fimmtudaginn með sinum fyrstu eigin tónleikum í rúm sjö ár. Liðsmenn heiðruðu minningu vinar, síns Hermanns Fannars, fyrir áramót með því að koma fram óvænt á tónleikum er haldnir voru í Kaplakrika í hans nafni. Stuttlega eftir það tilkynnti sveitin um að hún hyggðist snúa aftur til leiks í ár en hún mun spila á nokkrum tónlistarhátíðum í sumar.

Fyrst leikur Botnleðja þó á eigin tónleikum á Gauk og Stöng um helgina þar sem sveitin ætlar að leika í tæpar tvær klukkustundir, lög af öllum plötum sínum fimm. Um upphitun sér Nolo. Uppselt er á seinni tónleika sveitarinnar, sem haldnir verða á laugardaginn 16. júní - en miðar á fyrri tónleikana fóru nýverið á sölu og enn er hægt að tryggja sér eintak á midi.is.

Vegna þessa kíkti Heiðar Örn Kristjánsson, söngvari og gítarleikari Botnleðju, í heimsókn í útvarpsþáttinn Vasadiskó á sunnudaginn síðastliðinn. Þangað mætti hann með sitt eigið vasadiskó auk kassagítars en í lok viðtalssins spilaði hann lagið Fallhlíf sem var upphaflega að finna á plötunni Douglas Dakota frá árinu 2000.

Fylgist með Vasadiskó á Fésbókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×