Innlent

Milljónir í auglýsingar um kvótakerfið

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Útvegsfyrirtæki og hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa undanfarið varið milljónum í auglýsingaherferð gegn breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þingmaður segir herferðina ósvífna.

Auglýsingar sem birst hafa frá hagsmunasamtökum í sjávarútvegi undanfarið hafa vakið athygli. Þar má sjá sjómenn, verkalýðsforingja á landsbyggðinni og framkvæmdastjóra hinna ýmsu fyrirtækja segja frá neikvæðum áhrifum breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Nokkrar umræður hafa spunnist um herferðina þar sem ljóst er að nokkur kostnaður fylgir henni og slík herferð því ekki á færi allra.

Samkvæmt upplýsingum frá Birtingarhúsinu má gera ráð fyrir að hver mínútu auglýsing sem birtist fyrir fréttatíma stöðvanna kosti á bilinu 300 til 400 þúsund. Það var bæjarráð Fjarðarbyggðar sem stóð á bak við fyrstu auglýsingarnar en fljótlega bættust fleiri hagsmunaaðilar í hópinn. Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðsins og framkvæmdastjóri Fiskimiða, segist ekki hafa tölu á þeim auglýsingum sem birtar hafa verið og að kostnaðurinn liggi ekki fyrir.

„Kostnaðurin er nú einhver. Ég er nú ekki klár á því hver hann er, en hann er einhverjar milljónir. Það eru líka miklir hagsmunir í húfi og mörg störf sem þarf að verja úti á landi. Og ekki bara úti á landi heldur líka hérna í Reykjavík," segir Jens Garðar.

Þór Saari, þingmanni Hreyfingarinnar, finnst auglýsingarnar vera sorglegar og ósvífnar. Ekki sé alltaf farið með rétt mál í auglýsingunum. Þá séu þeir sem komi fram í auglýsingunum oft þeir sömu og eigi að vera hagsmunagæslumenn launþega. Það séu ekkert hagsmunir launþega að kvótinn sé í eigu örfárra sægreifa.

Jens segir ekkert óeðlilegt við að þessi leið sé farin. „Í okkar huga var þetta leið sem við töldum að myndi nýtast best til að koma sjónarmiðum okkar á framfæri," segir hann.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×