Sport

Þrjú Íslandsmet féllu í dag | Eygló komin með þrjár ÓL-greinar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eygló Ósk hefur farið á kostum í Laugardalslauginni.
Eygló Ósk hefur farið á kostum í Laugardalslauginni. Mynd/Vilhelm
Eygló Ósk Gústafsdóttir heldur áfram að gera það gott á Íslandsmeistaramótinu í 50 m laug en hún tryggði sér þátttökurétt í sinni þriðju grein á Ólympíuleikunum í dag.

Alls voru þrjú Íslandsmet sett í dag. Eygló Ósk setti met í 100 m baksundi þegar hún syndi á 1:02,33 mínútum og bætti þar með gamla metið sitt um 0,4 sekúndur.

Hún átti einnig þátt í Íslandsmeti í 4x100 m skriðsundi sem sundsveit Ægis bætti í dag. Sveitin synti á 3:51,64 en tími Eyglóar - 57,70 sekúndur - var nóg til að bæta stúlknamet í greininni en Eygló er aðeins sautján ára gömul.

Með henni í sveit Ægis var systir hennar, Jóhanna Gerða, og þær Sarah Blake Bateman og Sigrún Brá Sverrisdóttir.

Sarah Blake bætti einnig Íslandsmetið í 100 m flugsundi er hún synti á 59,93 sekúndum. Varð hún fyrst íslenskra kvenna til að synda undir einni mínútu í greininni.

Árangurinn dugði henni til að ná OST-lágmarki (Olympic Selection Time) sem má líkja við gömlu B-lágmörkin. Áður fyrr dugði B-lágmark til að tryggja sig á Ólympíuleika en þeir sundmenn sem ná ekki OQT (Olympic Qualifying Time) í minnst einni grein fá ekki sjálfkrafa þátttökurétt á leikunum í Lundúnum. Þeir þurfa að bíða þar til í sumar til að sjá hvort þeim verði úthlutað sæti í Ólympíusveit Íslands.

Eygló Ósk Gústafsdóttir tryggði sér hins vegar í gær þátttökurétt á leikunum þegar hún náði OQT-lágmarki í 200 m baksundi. Hún var áður búin að ná OST lágmarki í 200 m fjórsundi og í dag gerði hún slíkt hið sama í 100 m baksundi.

Þar sem hún er búin að ná OQT-lágmarki (sem má líkja við gamlu A-lágmarkið) dugir OST-lágmörk til að tryggja henni þátttökurétt í öðrum greinum. Hún mun því keppa í þremur greinum á Ólympíuleikunum í Lundúnum.

Eygló keppir einnig í 50 m baksundi á morgun en það er ekki keppnisgrein á Ólympíuleikunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×