Innlent

Ingibjörg: Davíð tók hamskiptum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ingibjörg við komuna í Landsdóm.
Ingibjörg við komuna í Landsdóm.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hafi tekið hamskiptum á upplýsingafundi með ríkisstjórninni 7. febrúar 2008. Davíð var þá nýkominn úr ferð frá London sem hann fór í til þess að ræða stöðu íslenskra banka.

Ingibjörg segir að Davíð hafi komið með þær upplýsingar að orðspor bæði Kaupþings og Glitnis væri mjög laskað erlendis. Hann hafi hreinlega úthúðað bankastjórnendum þessara banka en ekki stjórnendum Landsbankans. Hún hafði því tekið skilaboðum Davíðs með fyrirvara. „Þessi fundur var mjög sérstakur,‟ sagði Ingibjörg um fundinn með Davíð.

Ingibjörg segir þó að engar haldbærar upplýsingar hafi komið fram um það hvernig bregðast mætti við stöðu mála. „Það komu engar haldbærar upplýsingar, það var engin greining, ekkert stöðumat. Þetta var bara frásögn eins manns af því hvernig hann upplifði för sína til London,‟ sagði Ingibjörg. Hún segist ekki skilja hvers vegna þessi fundur sé svo umtalaður. „Ég hef aldrei skilið af hverju þessi fundur er talinn vera svona mikill lykilfundur. Ég held að ekkert okkar sem sat þarna, nema kannski formaður bankastjórnar, hafi talið það,‟ sagði hún.

Auk þessa fundar og fundarins 1. apríl 2008 átti ríkisstjórnin fundi með Seðlabankanum til þess að fá upplýsingar um það hvernig gengið hefði að fá lán til að stækka gjaldeyrisvaraforðann.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×