Innlent

Ragnheiður um ræðu Björns: "Þarna fór hann algjörlega yfir strikið"

Ragnheiður Elín Árnadóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði um ræðu Björns Vals Gíslasonar þingmanns VG í dag að sennilega væri þar um að ræða ósmekklegustu ræðu sem flutt hafi verið á þingi. „Þarna fór hann algjörlega yfir strikið," sagði Ragnheiður.

Björn Valur fór í pontu til að ræða Landsdómsmálið og sagði meðal annars að við vitnaleiðslurnar hefði komið í ljós að stjórnvöld, undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefðu sýnt af sér fádæma andvaraleysi mánuðina og árin fyrir hrun. Björn sagði einnig að enginn stjórnmálamaður boðist til að axla ábyrgð, ekki hinn ákærði, ekki seðlabankastjóri eða fulltrúar eftirlitsstofnana og því væri „eina vonin að Landsdómur kveði upp úr með það hvar ábyrgðin liggur hjá stjórnmálamönnum."

Hefði Steingrímur átt að upplýsa ríkisstjórn um aukin höft?

Ragnheiður Elín sagðist annars hafa ætlað að ræða mál sem upplýstist í umræðunni um breytingu á lögum um gjaldeyrishöft í gær. Þá hafi Helgi Hjörvar formaður efnahags- og viðskiptanefndar útskýrt af hverju Steingrímur J. Sigfússon hefði ekki flutt málið sem efnhags- og viðskiptaráðherra. „Þá var skýringin sú að það væri ekki hægt að fara með þetta fyrir ríkisstjórnarfund í morgun því þá hefði ekki gefist nægur tími til að klára löggjöfina."

Ragnheiður sagði þetta merkileg svör og benti á líkindin við Landsdómsmálið og það sem Geir H. Haarde er meðal annars ákærður fyrir, það er, að hafa ekki upplýst ríkisstjórn nægilega vel um gang mikilvægra mála.

„Nú var það upplýst hér í gær í umræðunni að hæstvirtur efnahags- og viðskiptaráðherra taldi ekki ástæðu til að halda ráðherrafund eða upplýsa ríkisstjórn Íslands um það frumvarp sem varð hér að lögum í gær. Það skyldi þó ekki vera að það verði einshvertíma sá dómur, þó það verði ekki nema sögunnar, að þarna hafi verið um vítaverða vanrækslu að ræða."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×