Tónlist

Vasadiskó: plötur ársins 2011 tilkynntar á sunnudag

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Sóley átti annað besta lag síðasta árs að mati Vasadiskó, hvar endar hún á plötulistanum?
Sóley átti annað besta lag síðasta árs að mati Vasadiskó, hvar endar hún á plötulistanum?
Seinni uppgjörsþáttur Vasadiskó fyrir tónlistarárið 2011 verður á sunnudaginn næstkomandi. Á sínum hefðbundna tíma og á sinni hefðbundnu útvarpsstöð, kl. 15 á X-inu 977. Í síðustu viku gerði þáttastjórnandi upp árið hvað lög varðar en á sunnudaginn verða taldar upp 30 bestu erlendu plöturnar og þær 20 bestu af þeim íslensku. Það voru Mugison, PrinsPóló og Sóley sem áttu þrjú efstu lög ársins í íslensku deildinni en Lana Del Rey, Laura Marling og The Weeknd sem þóttu hlutskörpust af erlendum listamönnunum.

Vikulega er þátturinn sniðinn til þess að kynna nýútkomna tónlist fyrir áhugasömum. Þátturinn hóf göngu sína í apríl á síðasta ári og hefur vaxið töluvert á þeim stutta tíma. Viðbrögðin við árslista Vasadiskó hvað lögin varðar voru þónokkur. Margir listamenn vöktu athygli á listanum á Fésbókar síðum sínum með því að deila öðrum Fésbókar-færslum og fréttum af Vísi. Á meðan á þættinum stóð póstaði þáttarstjórnandi niðurstöðunum, sæti fyrir sæti, jafnóðum á Fésbókar síðu þáttarins. Þannig verður það einnig gert með plöturnar á sunnudag, þannig að áhugasamir netverjar sem eru, af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ekki að hlusta, geta þó fylgst með í tölvunni sinni. Listarnir verða svo birtir hér á Vísi strax að þætti loknum.

Þátturinn er í boði Gogoyoko. Fylgist með Vasadiskó á Fésbókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×