Harmageddon

Rokkprófið - Daníel Ágúst vs. Lay Low

Daníel Ágúst og Lay Low.
Daníel Ágúst og Lay Low.
SPURNINGAR

1. Hefurðu aflýst tónleikum vegna eymsla í hálsi?

2. Hljómsveitarrútan bilar á ferð um mið-Evrópu. Hvað gerir þú?

3. Hvenær varstu síðast handtekinn?

4. Áttu óskilgetin afkvæmi í fleiri en fimm sýslum á Íslandi?

5. Ertu með nafn fyrrverandi elskhuga húðflúrað á þig?

6. Allir eiga leðurjakka, en átt þú leðurbuxur?

7. Ertu með númerið hjá Helga Björns í símanum þínum?

8. Myndirðu semja lag fyrir ímyndarauglýsingu NATÓ gegn ríflegri greiðslu?

9. Í kvikmynd um líf þitt, hvaða leikstjóri væri rétti maðurinn í starfið?

10. Björn Jörundur splæsir á barnum, hvað færðu þér?

SVÖR

Daníel Ágúst, söngvari GusGus

1. Nei. (1 stig)

2. Það fer nú eftir því í hvaða landi maður verður strand. Ég held ég myndi setjast niður einhvers staðar og fá mér drykk. (1 stig)

3. Man það ekki. (1 stig)

4. Nei. (0 stig)

5. Nei, ekki með neitt tattú. (0 stig)

6. Ég á leðurfrakka. (1 stig)

7. Já. (1 stig)

8. Já. (0 stig)

9. Jim Jarmusch. (1 stig)

10. Eitthvað gott viskí. (1 stig)



Lay Low tónlistarkona

1. Mér finnst það líklegt, en ég hef pínt mig. Tekið gigg og verið rammfölsk og asnaleg. (1 stig)

2. Ég er með bílstjóra sem reddar þessu. (1 stig)

3. Ég hef aldrei verið handtekin, en var einu sinni tekin fyrir að bakka upp Norðurstíginn. (0 stig)

4. Það fer eftir hvað þú kallar afkvæmi. (0 stig)

5. Nei, en ég er með ör sem er á upphandleggnum, sem er eins og ég hafi skorið tattú af. Ég hef stundum logið að það hafi verið nafn þarna. (1 stig)

6.Nei. Ég á ekkert leður að neðan. Nema skó. (0 stig)

7. Nei. (0 stig)

8. Nei. (1 stig)

9. Magnús Øder upptökustjóri. Hann er alltaf að reyna að stjórna mér, þó honum takist það ekki alltaf. Það yrði mjög súr mynd. (1 stig)

10. Ég er ósköp dönnuð þegar fólk splæsir, þannig að ég fæ mér bara bjór. (1 stig)



NIÐURSTAÐA:

DANÍEL ÁGÚST 7 STIG

LAY LOW 6 STIG


Tengdar fréttir

Rokkprófið - Björgvin Halldórsson vs. Erpur Eyvindarson

Megatöffararnir Björgvin Halldórs og Erpur Eyvindar kljást í hinum klassíska bardaga, rokkprófinu. Hvenær voru þeir síðast handteknir? Hvað með óskilgetnu afkvæmin? Hvað er málið með Helga Björns?








×