Harmageddon

Ný plata frá Diktu

Strákarnir í Diktu snúa aftur um miðjan nóvember með nýja plötu.
Strákarnir í Diktu snúa aftur um miðjan nóvember með nýja plötu.
Umslag nýju plötunnar með Diktu er stórglæsilegt.
Dikta sló í gegn með plötunni Get it Together fyrir tveim árum. Ný plata er væntanleg frá hljómsveitinni og glæsilegur fálki prýðir umslagið.

"Þetta verður ellefu laga meistaraverk,“ segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Diktu.

Dikta sendir frá sér fjórðu breiðskífuna sína um miðjan nóvember. Platan hefur fengið nafnið Trust Me, en von er á laginu What Are You Waiting For? í útvarpsspilun í þessari viku.

Umslag plötunnar er eftir myndlistarmanninn Heimi Björgúlfsson, sem býr í Los Angeles í Bandaríkjunum. "Við kynntumst verkum hans á netinu og svo hitti ég hann þegar ég var í LA í sumar,“ segir Haukur.

Dikta sló í gegn með síðustu plötu sinni, Get It Together, sem kom út árið 2009. Platan seldist í þúsundum eintaka og lögin Thank You, From Now On og Just Getting Started hafa notið gríðarlegra vinsælda og flakkað á milli flestra útvarpsstöðva landsins.








×