Innlent

Fyrstu tölur verða klárar fyrir ellefu

Í atkvæðagreiðslunni í fyrra voru allir atkvæðaseðlar fluttir til Reykjavíkur til talningar. Nú verður talið í hverju kjördæmi. Fréttablaðið/Stefán
Í atkvæðagreiðslunni í fyrra voru allir atkvæðaseðlar fluttir til Reykjavíkur til talningar. Nú verður talið í hverju kjördæmi. Fréttablaðið/Stefán
Von er á fyrstu tölum úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-samninginn á laugardag fyrir klukkan ellefu um kvöldið. Þær munu líkast til koma úr Norðausturkjördæmi, ef marka má orð formanns yfirkjörstjórnar kjördæmisins en hann er sá eini sem segist sannfærður um að hægt verði að kynna tölur fyrir þann tíma.

„Það er alveg klárt," segir Páll Hlöðversson, formaður yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi. „Við verðum tilbúin með fyrstu tölur nálægt ellefu, jafnvel enn fyrr."

Formenn yfirkjörstjórna í Norðvestur-, Suður- og Suðvesturkjördæmum segjast stefna að því að kynna fyrstu tölur klukkan ellefu, og í Reykjavík er talað um að fyrstu tölur verði líklega tilbúnar „einhvern tíma á tólfta tímanum".

Talning hefst í öllum kjördæmum á slaginu tíu en í þremur kjördæmum stendur til að byrja að flokka atkvæðin nokkrum klukkustundum fyrr. Í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og í Norðausturkjördæmi verða kjörkassarnir hins vegar ekki opnaðir fyrr en klukkan tíu.

Sveinn Sveinsson, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, segir að það verði gert til að taka enga óþarfa áhættu, í ljósi ógildingar Hæstaréttar á kosningunum til stjórnlagaþings.

Með hliðsjón af þeirri ákvörðun hefur landskjörstjórn nú skipað tólf manns sem umboðsmenn ólíkra sjónarmiða í Icesave-málinu, tvo í hverju kjördæmi, til að fylgjast með á kjörstöðum og að talningin fari rétt fram.

Óljóst er hvenær talningu mun ljúka en líklega er það mjög breytilegt eftir kjördæmum. Í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi búast menn við því að lokatölur gætu legið fyrir um klukkan tvö. Í landsbyggðarkjördæmunum er óvissan meiri, enda þarf í mörgum tilfellum að flytja kjörkassa um langan veg á talningarstaði.

Ekið verður með kjörkassa frá Höfn í Hornafirði á Selfoss klukkan tíu. Sá akstur tekur fjóra tíma, og þá á eftir að telja atkvæðin. Þá er það einnig háð veðri á kjördag hvort hægt verður að fljúga með atkvæði frá Ísafirði til Akraness, enda þarf góð veðurskilyrði til að hægt sé að fljúga þar í myrkri. Annars þarf að aka langa leið.

Ef allt gengur hins vegar að óskum má búast við að endanlegar tölur af landinu öllu liggi fyrir í síðasta lagi á fimmta tímanum.

stigur@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×