Matur

Keppendur úr Bocuse d'Or á Food and Fun

Þráinn Freyr Vigfússon varð í 7. sæti í Bocuse d'Or árið 2011.
Þráinn Freyr Vigfússon varð í 7. sæti í Bocuse d'Or árið 2011.
Þeir keppendur á Food and Fun í ár sem hafa tekið þátt í hinni frægu Bocuse d‘Or keppni eru Matti Jämsen frá Finnlandi og Chris Parsons frá Bandaríkjunum sem verið hefur einn af tólf útvöldum sem keppa í amerísku undankeppninni.

Tveir dómaranna í ár hafa unnið gullverðlaunin í Bocuse d‘Or, þeir Sven Erik Renaa, sem vann gullið bæði 2000 og 2006, og Geir Skeie sem fékk gullið árið 2009. Michael Ginor hefur verið dómari í amerísku undankeppninni.

Bocuse d’Or, virtasta matreiðslukeppni sem haldin er í heiminum, hefur verið haldin annað hvert ár síðan 1987 og komast færri þjóðir að en vilja. Þjóðir fá keppnisrétt eftir að hafa unnið forkeppni úr sinni heimsálfu, en fimm efstu sætin í sjálfri Bocuse d’Or-keppninni tryggja þeim þjóðum sjálfkrafa keppnisrétt í næstu keppni. Bocuse d’Or er oft kölluð hin eina sanna heimsmeistarakeppni í matreiðslu.

Íslendingar hafa verið með í síðustu fimm skipti eða frá 1999 og er árangur þeirra vægast sagt glæsilegur og sýnir tölfræðin að Íslendingar eru í hópi sex bestu þjóða í heiminum í matreiðslu. Árið 1999 fór Sturla Birgisson sem frumkvöðull fyrir Íslands hönd og náði fimmta sætinu og ruddi þar með brautina fyrir næstu keppendur.

Úrslit úr Bocuse d"Or 2011:

1. sæti - Danmörk, Rasmus Kofoed

2. sæti - Svíþjóð, Tommy Myllymaki

3. sæti - Noregur, Gunnar Hvarnes

Þess má geta að Þráinn Freyr Vigfússon hafnaði í sjöunda sæti í síðustu keppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×