Innlent

"Ullaði á sjálfa mig og samdi lög“

Björk Guðmundsdóttir
Björk Guðmundsdóttir Mynd/Stefán Karlsson
Björk Guðmundsdóttir hefur haft hátt um Magma-málið og og skylmst opinberlega við forstjóra fyrirtækisins. Á þrettándanum stendur hún fyrir karókímaraþoni svo þjóðin geti sungið auðlindirnar aftur til sín.

Björk hefur verið áberandi hér heima undanfarna mánuði vegna andstöðu sinnar við söluna á HS Orku til kanadíska fyrirtækisins Magma Energy. Hún segir þann eldmóð sinn mega rekja til þess þegar hún hélt fjölsótta tónleika undir heitinu Náttúra í Laugardals höll sumarið 2008 ásamt Sigur Rós, Ólöfu Arnalds og Ghostigital. Rætt er við Björk í helgarblaði Fréttablaðsins.

Þótt Björk hafi nú um nokkurra ára skeið sýnt náttúruverndarmálum áhuga hefur hún látið óvenjumikið á sér bera í Magma-málinu. „Ég hef alltaf verið týpan sem gerir annað hvort núll eða 500 prósent. Ég gerði ekki neitt áður, var beðin um að taka þátt í alls konar en fannst ég ekki geta gert bara smá. Svo fannst mér vera komið að mér þegar ég hélt Náttúrutónleikana."

Auk þess segir Björk: „Svo bara tók ég mig til, ullaði á sjálfa mig og samdi lög eins og Declare Independence, sem var pólitískt lag. Kannski langaði mig líka að uppfæra þessa hugmynd, að baráttusöngvar væru ekki bara hippalög með kassagítar heldur gæti líka til dæmis verið elektróník í þeim."

Álfarnir og tröllin syngja með

Á þrettándanum stendur Björk fyrir karókímaraþoni í Norræna húsinu ásamt öðru landsþekktu tónlistarfólki til að vekja áhuga á baráttu sinni fyrir þjóðareign á auðlindum landsins og því að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald og nýtingu þeirra. „Það er ekki tilviljun að við skulum hafa þetta á þrettándanum," segir hún. „Álfarnir, tröllin og landvættirnar koma út og syngja með okkur."

„Mig langar að færa þessa baráttu aftur þangað sem hún byrjaði, í tónlistina. Það væri stórkostlegt ef við gætum endað þetta á tónlist og gleði og fögnuði yfir því að við eigum þessar auðlindir," segir Björk í viðtalinu sem hægt er að lesa í heild hér og hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×