Skoðun

Mál­efna­leg rök­ræða um ný tæki­færi í heil­brigðis­þjónustu

Gunnar Ármannsson skrifar

Nýverið hefur í dagblöðum og ljósvakamiðlum birst gagnrýni á fyrirhuguð áform um innflutning á erlendum sjúklingum til Íslands. M.a. hefur Ögmundur Jónasson innríkisráðherra, verið duglegur að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þrátt fyrir gagnrýni hans hefur hann þó látið hafa eftir sér að svo fremi sem ekki verði grafið undan almannaþjónustunni og skattfé borgaranna ekki notað þá sé hann ekki mótfallinn hugmyndunum.

Það er ánægjulegt og tímabært að þessi umræða fari fram og fái þá athygli sem eðlilegt er fyrir nýjar hugmyndir sem geta haft víðtæk áhrif til framtíðar. Hingað til hafa sumir þeirra sem um málið hafa fjallað á opinberum vettvangi gert það af takmarkaðri þekkingu og fordómum. Á það sérstaklega við um þann markað sem verið er að leita á og jafnframt um áform þeirra sem eru að reyna að hrinda nýjum hugmyndum í framkvæmd. Því er mikilvægt að rökræða um málefnið fari fram þannig að unnt sé draga fram í sviðsljósið kosti og galla þessara áforma.

Til að umræðan verði málefnaleg er æskilegt að talsmenn beggja sjónarmiða, með og á móti, temji sér slíka nálgun. Ingibjörg Pálmadóttir fyrrverandi heilbrigðisráðherra og Ögmundur Jónasson gera aðstandendum þessara áforma upp fyrirætlanir eins og að til standi að komast inn bakdyramegin inn í íslenska heilbrigðiskerfið og að koma hér upp tvöföldu heilbrigðiskerfi. Hvað varðar áform PrimaCare stendur hvorugt til og fékk Ögmundur Jónasson frá fyrstu hendi upplýsingar um það á næstsíðasta degi hans í embætti heilbrigðisráðherra. Ingibjörg hefur ekki óskað eftir neinum upplýsingum um áform PrimaCare áður en hún ákvað að gera forsvarsmönnum fyrirtækisins upp ímyndaðar fyrirætlanir.

Að sjálfsögðu er aðeins hægt að drepa á fá atriði í stuttri grein sem þessari en ég vænti þess að á næstu vikum og mánuðum muni verða áframhaldandi umræða um þessi áform.

Það er einnig von mín að þeir sem vilja leggja rökræðunni gott til geri það á uppbyggilegan hátt með það í huga hvernig við getum best tryggt að ný starfsemi fái brautargengi og geti skapað störf og gjaldeyristekjur án þess að raska því kerfi sem við viljum búa við.

 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×