Innlent

Rætt um að draga málið gegn Geir til baka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Geir Haarde var ákærður fyrir landsdómi fyrir vanrækslu í aðdraganda hrunsins.
Geir Haarde var ákærður fyrir landsdómi fyrir vanrækslu í aðdraganda hrunsins.
Þingmenn á Alþingi hafa rætt þá hugmynd sín á milli í dag að draga landsdómsmálið gegn Geir Haarde til baka. Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, gerir málið að umtalsefni á fésbókarsíðu sinni "Heyrst hefur að hér í þinginu sé að koma fram tillaga um að draga landsdómsmálið gegn Geir Haarde til baka!,“ segir hún.

Málið mun hafa verið rætt í þingflokkum í dag og búast má við frekari umræðum innan flokka í kvöld. Við segjum betur frá þessu máli þegar frekari fréttir berast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×