Innlent

Vilja draga ákæru gegn Geir til baka

Jónas Margeir Ingólfsson skrifar
Þingsályktunartillaga um að skorað verði á saksóknara Alþingis að láta málið gegn Geir H. Haarde, fyrir landsdómi, niður falla, verður lögð fram. Enn ríkir óvissa um hversu margir mæli fyrir tillögunni en þingmenn hafa rætt málið sín á milli í dag.

Alþingismenn ræddu málið í hverju horni þinghússins í dag en það hefur skapað mikinn titring innan flestra þingflokka.

Í þingsályktunartillögunni felst að Alþingi skori á saksóknara Alþingis, sem rekur málið gegn Geir H. Haarde fyrir landsdómi, að láta málið niður falla. Formlega getur þingið ekki dregið ákæruna til baka og því er tillagan með þeim hætti að skorað verði á saksóknara að gera það.

Bjarni Benediktsson, formaður sjálfstæðisflokksins, mun að öllum líkindum mæla fyrir frumvarpinu en óvíst er hvort þingmenn úr öðrum flokkum muni jafnframt mæla fyrir því. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa ákveðnir þingmenn innan stjórnarflokkana sýnt því áhuga að flytja málið en aðrir telja það óæskilegt. Þetta hefur því verið eitt helsta þrætuepli þingmannana í dag.

Sjálfstæðismenn telja meirihluta vera fyrir þingsályktunartillögunni í þinginu. Sumir þingmenn annarra flokka eru jafnframt sammála því.

Þingflokkur vinstri grænna fundar nú klukkan sjö, en ætla má að þar verði rætt hvort einhverjir þingmenn flokksins mæli fyrir þingsályktunartillögunni.

Þingflokkur Samfylkingar hefur þegar fundað einu sinni í dag en hlé verður gert á störfum þingsins klukkan sjö. Þingflokksfundur Samfylkingarinnar hefur þó ekki verið boðaður þá.

Ef svo fer að þingmenn flestra flokka leggi tillöguna fram í sameiningu, má ætla að hún verði lög fyrir þingið á morgun. Hins vegar ef einungis sjálfstæðismenn leggja tillöguna fram er óvíst hvenær hún verði lögð fyrir þingið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×