Sport

Ekkert sem stöðvar Green Bay Packers

Jordy Nelson fagnar snertimarki með stuðningsmönnum Packers.
Jordy Nelson fagnar snertimarki með stuðningsmönnum Packers.
Það er ekkert lát á góðu gengi Green Bay Packers í NFL-deildinni en liðið vann í gær sinn tíunda leik í röð í vetur. Packers er búið að vinna 16 leiki í röð ef sigurhrina síðasta tímabils er tekin inn í reikninginn.

San Francisco 49ers er þó það lið sem hefur komið allra liða mest á óvart í vetur en Niners vann sínn áttunda leik í röð í gær og er með 9-1 árangur sem hefur komið öllum í opna skjöldu.

Það lið sem er að koma hvað sterkast upp um þessar mundir fyrir utan Packers og Niners er lið Chicago Bears. Liðið varð þó fyrir því áfalli í gær að leikstjórnandinn Jay Cutler meiddist og verður frá næstu vikurnar. Það er gríðarlegt áfall fyrir Bears og getur sett stórt strik í reikninginn hjá þeim í framhaldinu.

Úrslit helgarinnar:

Baltimore-Cincinnati  31-24

Cleveland-Jacksonville  14-10

Detroit-Carolina  49-35

Green Bay-Tampa Bay  35-26

Miami-Buffalo  35-8

Minnesota-Oakland  21-27

Washington-Dallas  24-27

San Francisco-Arizona  23-7

St. Louis-Seattle  7-24

Atlanta-Tennessee  23-17

Chicago-San Diego  31-20

NY Giants-Philadelphia  10-17

Í kvöld:

New England-Kansas City í beinni á ESPN America.

Staðan í Ameríkudeildinni:

Austurriðill (sigrar-töp):

New England  6-3

NY Jets  5-5

Buffalo  5-5

Miami  3-7

Norðurriðill:

Baltimore  7-3

Pittsburgh  7-3

Cincinnati  6-4

Cleveland  4-6

Suðurriðill:

Houston  7-3

Tennessee  5-5

Jakcsonville  3-7

Indianapolis  0-10

Vesturriðill:

Oakland  6-4

Denver  5-5

Kansas City  4-5

San Diego  4-6

Staðan í Þjóðardeildinni:

Austurriðill:

Dallas  6-4

NY Giants  6-4

Philadelphia  4-6

Washington  3-7

Norðurriðill:

Green Bay  10-0

Detroit  7-3

Chicago  7-3

Minnesota  2-8

Suðurriðill:

New Orleans  7-3

Atlanta  6-4

Tampa Bay  4-6

Carolina  2-8

Vesturriðill:

San Francisco  9-1

Seattle  4-6

Arizona  3-7

St. Louis  2-8

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×