Tónlist

Sveim í svart/hvítu snýr aftur

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Í kvöld verður dagskráliðurinn Sveim í svart/hvítu endurvakin í tilefni 20 ára afmælis Unglistar. Um er að ræða sýningu nær alda gamalla þöglra kvikmynda þar sem ferskir íslenskir raftónlistarmenn sjá um undirleikinn.

Margar þekktar sveitir, sem voru ekki svo þekktar þá, stigu sín fyrstu skref á Sveim í svart/hvítu en dagskráliðurinn var skapaðu í kringum 100 ára afmæli kvikmyndarinnar árið 1995. Þar má nefna Sigur Rós, Biogen og Múm sem ætla að rifja upp kynni sín við hefðina og koma aftur fram á Sveiminu í kvöld.

Á dagskrá kvöldsins eru þrjár myndir. The Cabinet of Dr. Caligari frá 1920 sem Múm og sigursveit músíktilrauna í ár Samaris leika undir. Hin frumlega DJ flugvél og geimskip leikur undir súríalísku stuttmyndina Un Chien Andalou sem Salvador Dali gerði. Loks eru það Futuregrapher (ásamt Trouble), Úlfur og tilraunasnúðurinn Pyrodulia sem leika undir hið magnaða meistaraverk Faust.

Eins og á alla viðburði Unglistar er frítt inn en herlegheitin hefjast í Tjarnarbíói í kvöld klukkan 20:00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×