Sport

Eygló Ósk með Íslandsmet í 100 metra baksundi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Eygló Ósk Gústafsdóttir. Mynd/Anton
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi setti nýtt Íslandsmet í undanrásum á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug í Laugardalslauginni í morgun. Eygló Ósk bætti sitt eigið með í 100 metra baksundi.

Eygló Ósk synti 100 metra baksund á 1:01.75 mínútu en gamla metið hennar var 1:01.92 mínúta. Eygló er bara sextán ára gömul og metið hennar var einnig stúlknamet.

Ólafur Sigurðsson úr SH setti einnig sveinamet í 400 metra fjórsundi þegar hann synti vegalengdina á 5:21.37 mínútum og bætti met Arnórs Stefánssonar úr SH sem synti á sínum tíma á 5:21.22 mínútum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×