Sport

Þjálfari Jets við áhorfanda: "Fuck off"

Rex Ryan, þjálfara NY Jets, gæti verið refsað af NFL-deildinni eftir að hann hreytti blótsyrðum í áhorfanda eftir tap liðsins gegn New England Patriots í gær.

Ryan var að vonum hundfúll eftir að Jets hafði tapað í mjög mikilvægum leik.

Er hann gengur af velli kallar einn áhorfandi að honum að þjálfari New England sé betri en hann. Það kunni Ryan ekki að meta og svaraði um hæl: "Fuck off" en það þarf vart að þýða.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ryan kemur sér í vandræði því á síðasta ári var hann sektaður um 50 þúsund dollara er hann sýndi áhorfanda puttann eins og það kallast.

Atvikið kemur eftir 18 sekúndur á myndbandinu hér að ofan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×