Sport

Colts gæti losað sig við Manning

Manning gefur þjálfara Colts ráð af hliðarlínunni.
Manning gefur þjálfara Colts ráð af hliðarlínunni.
Án Peyton Manning hefur allt farið í vaskinn hjá Indianapolis Colts. Liðið er búið að tapa öllum átta leikjum sínum í deildinni og tímabilið búið hjá liðinu. Manning er frá vegna hálsmeiðsla en þrátt fyrir allt vonast hann til þess að spila eitthvað á þessari leiktíð.

Colts stendur á ákveðnum tímamótum og þarf að taka erfiða ákvörðun fyrir framtíðina. Hvort það veðji á Manning einhver ár í viðbót, greiði honum afar mikla peninga eða moki honum út og byrji að byggja upp á nýtt með nýjum leikstjórnanda.

Colts er sagt vera að íhuga að velja Andrew Luck, leikstjórnanda Stanford, í háskólavalinu en sá kappi er afar efnilegur. Colts fengi þá nýja byrjun með framtíðarmanni sem kostar talsvert minna en Manning.

Manning skrifaði í sumar undir nýjan fimm ára samning en Colts getur ógilt þann samning eftir tímabilið. Forráðamenn Colts þurfa því að taka erfiðar ákvarðanir.

Manning hefur farið í þrir aðgerðir á hálsi á síðustu 19 mánuðum og því er eðlilega óvissa með framhaldið hjá honum.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×