Tónlist

Vasadiskó: Tvær plötur væntanlegar frá Múm

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Þeir aðdáendur Múm er hafa óttast aukin afskipti Örvars Þóreyjarsonar Smárasonar í hljómsveitinni FM Belfast þurfa eigi að kvíða. Örvar greindi frá því í útvarpsþættinum Vasadiskó síðastliðin sunnudag að múm væri ekki bara að vinna að vinna að nýrri plötu - heldur líka tónlist við kvikmynd sem líklegt er að komi út sem önnur breiðskífa. Þar er sveitin m.a. að gera tilraunir við að færa sig í poppaðri áttir og hugsanlega verður þar að finna einhvers konar samstarf við aðra þekkta popplistamenn.

þrjú ár eru liðin frá því að Múm gaf út plötuna Sing along to songs you don't know en sveitin er nú á málum hjá þýsku útgáfunni Morr music, eins og svo margir aðrir íslenskir tónlistarmenn.

Íslenskum aðdáendum sveitarinnar gefst færi á að sjá þá Örvar og Gunna leika á tónleikum næstkomandi föstudag en þá endurvekur sveitin kynni sín við Sveim í svart/hvítu, áður árlegur viðburður Unglistar þar sem ungar rafsveitir léku undir nær aldagamlar þöglar svart/hvítar myndir. Múm kemur til með að spinna tónlist undir myndina The Cabinet of Caligari frá árinu 1919. Sveimið fer fram í Tjarnarbíó á föstudag, hefst á slaginu átta og er aðgangur ókeypis. Auk Múm koma þar fram Samaris, Futuregrapher (ásamt Trouble), Úlfur, DJ Flugvél og geimsskip og Pyrodulia.

Fylgist með Vasadiskó á Facebook. Sívaxandi samfélag á Fésbókinni þar sem íslenskir grúskrara geta fengið vísbendingar um góða nýútkomna tónlist til þess að fylla á vasadiskóin sín. Ekki gleyma að smella á "like"-hnappinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×