Innlent

Fær milljón eftir hjartastopp við Fylkisheimilið

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur mYND ÚR SAFNI
Íþróttafélagið Fylkir var í dag dæmt til að greiða karlmanni rúmlega eina milljón króna í bætur vegna slyss sem hann varð fyrir við félagsheimili liðsins í Árbæ í september árið 2005.

Maðurinn var á leið á dansleik í félagsheimilinu en hann hafði áður verið í samkvæmi í heimahúsi í Árbænum. Hann fór gangandi á dansleikinn og þegar hann nálgaðist félagsheimili virðist sem svo að hann hafi ætlað að stytta sér leið með því að stökka yfir steinvegg, sem séð frá honum var 72 cm á hæð.

Það var ekki rétt því hinum megin við veginn reyndust hinsvegar vera 3,82 metrar niður á steinsteypa stétt. Maðurinn féll á stéttina og þegar sjúkrabifreið kom á staðinn var maðurinn í hjartastoppi og andaði ekki. Hófust lífgunartilraunir og við komu á slysadeild var hann farinn að anda á ný. Við skoðun reyndist hann óbrotinn en talsvert marinn á lungum.

Fyrir dómi taldi maðurinn að hann bæri enga sök á tjóni sínu heldur sé slys hans eingöngu að rekja til vanbúnaðar í nánasta umhverfi Fylkisheimilisins. Hann vísaði til umfjöllunar fréttastofu Stöðvar 2 um málið eftir atburðinn. Þar kom fram hjá framkvæmdastjóra Fylkis að lengi hafi staðið til að lagfæra vegginn en ástæðan fyrir því að það hafði ekki verið gert væri sú að iðnaðarmaður sá er fenginn hafði verið til þess hefði ekki komist í verkið vegna anna.

Verjandi Fylkis sagði fyrir dómi að maðurinn hafi verið ölvaður á ferð í svartamyrkri og algjörlega ókunnugur umhverfinu þegar hann hafi án fyrirvara rekið á rás frá samferðarmönnum sínum. Þá hafi hann stokkið yfir vegginn sem sé við inngang á efri hæð hússins án þess að huga nokkuð að því hvað væri handan hans.

Íþróttafélagið Fylkir viðurkenndi að bera ábyrgð á 3/4 hlutum tjónsins en félagið taldi að maðurinn hafi sýnt af sér verulegt gáleysi og rétt væri að hann bæri fjórðun tjóns síns sjálfur.

„Þótt stefnandi (maðurinn) hafi ekki farið þá leið sem ætlast var til heldur stokkið yfir vegginn, að því sem virðist til að stytta sér leið, verður með hliðsjón af öllum kringumstæðum ekki talið að hann hafi sýnt af sér slíkt gáleysi að hann eigi að bera meðábyrgð á tjóni sínu,“ segir í niðurstöðu dómsins.

Fylkir var dæmt til að greiða manninum rúmlega eina milljón króna og jafnframt að greiða allan sakarkostnað mannsins, 650 þúsund krónur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×