Sport

Philadelphia vaknað - Steelers slökkti á Brady

Margir efast um getu Patriots til að fara alla leið eftir tapið gegn Steelers í gær.
Margir efast um getu Patriots til að fara alla leið eftir tapið gegn Steelers í gær.
Kraftaverkin gerast í St. Louis þessa dagana. Hafnaboltalið borgarinnar varð meistari í vikunni á ótrúlegan hátt og NFL-lið borgarinnar fylgdi þeim titli eftir með því að vinna sinn fyrsta sigur í vetur um helgina. Rams gerði sér þá lítið fyrir og lagði New Orleans Saints sem hafði pakkað Colts saman, 62-7, vikuna á undan.

Annars var nokkuð um athyglisverð úrslit um helgina. Það lið sem hefur valdið mestum vonbrigðum, Philadelphia Eagles, hrökk loksins í gírinn og valtaði yfir Kúrekana frá Dallas. Frammistaða liðsins í nótt gefur stuðningsmönnum félagsins von um að það sé komið í gang og muni tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.

Vörn Pittsburgh Steelers lokaði síðan á Tom Brady og það skilaði Steelers sterkum sigri á Patriots.

Úrslit helgarinnar:

Baltimore-Arizona  30-27

Carolina-Minnesota  21-24

Houston-Jacksonville  24-14

NY Giants-Miami  20-17

St. Louis-New Orleans  31-21

Tennessee-Indianapolis  27-10

Buffalo-Washington  23-0

Denver-Detroit  10-45

Pittsburgh-New England  25-17

Seattle-Cincinnati   12-34

San Francisco-Cleveland  20-10

Philadelphia-Dallas  34-7

Í kvöld: Kansas City-San Diego (beint á ESPN America)

Staðan í Ameríkudeildinni:

Austurriðill (sigrar-töp):

Buffalo Bills  5-2

New England Patriots  5-2

NY Jets  4-3

Miami Dolphins  0-7

Norðurriðill:

Pittsburgh Steelers  6-2

Cincinnati Bengals  5-2

Baltimore Ravens  5-2

Cleveland Browns  3-4

Suðurriðill:

Houston Texans  5-3

Tennessee Titans  4-3

Jacksonville Jaguars  2-6

Indianapolis Colts  0-8

Vesturriðill:

San Diego Chargers  4-2

Oakland Raiders  4-3

Kansas City Chiefs  3-3

Denver Broncos  2-5

Staðan í Þjóðardeildinni:

Austurriðill:

NY Giants  5-2

Dallas Cowboys  3-4

Washington Redskins  3-4

Philadelphia Eagles  3-4

Norðurriðill:

Green Bay Packers  7-0

Detroit Lions  6-2

Chicago Bears  4-4

Minnesota Vikings  2-6

Suðurriðill:

New Orleans Saints  5-3

Tampa Bay Buccaneers  4-3

Atlanta Falcons  4-3

Carolina Panthers  2-6

Vesturriðill:

San Francisco 49ers  6-1

Seattle Seahawks  2-5

Arizona Cardinals  1-6

St. Louis Rams  1-6

Ef tímabilið endaði svona færu þessi lið í úrslitakeppnina:

Wild Card-leikir í Ameríkudeild:

New England-San Diego Chargers

Cincinnati Bengals-Houston Texans

Pittsburgh og Buffalo myndu mæta sigurvegurunum í leikjunum að ofan.

Wild Card-leikir í Þjóðardeild:

Chicago Bears-NY Giants

Detroit Lions-New Orleans Saints.

Green Bay Packers og San Francisco 49ers myndu mæta sigurvegurunum í leikjunum að ofan.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×