Stjórnarformaður Kvikmyndaskólans hættur 11. október 2011 19:30
Böðvar Bjarki Pétursson er hættur sem stjórnarformaður Kvikmyndaskóla Íslands. Nemendur og kennarar kröfðust þess að Böðvar stigi til hliðar til að sátt skapaðist um starf skólans. Mennta- og menningarmálaráðuneytið gerði í byrjun mánaðarins styrktarsamning við skólann og var eitt af skilyrðunum fyrir samningnum að eigi síðar en fimmtánda þessa mánaðar gæfu fulltrúar nemenda og kennara, ásamt stjórn Kvikmyndaskólans út sameiginlega yfirlýsingu um að sátt ríki á milli aðila um starf og stjórnun skólans á núverandi skólaári. Mikil óvissa hefur ríkt síðan samningurinn var gerður og lýstu nemendur skólans yfir vantrausti á stjórnina. Þá kröfðust þeir afsagnar Böðvars Bjarka. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði hann tapað trausti bæði nemenda og kennara. Nokkrir kennarar höfðu gefið út að þeir myndu hætta störfum ef Böðvar Bjarki héldi áfram og það gátu nemendur ekki sætt sig við. Það er mat margra nemenda að að þrátt fyrir að Böðvar Bjarki hafi gert margt jákvætt fyrir skólann, sé hann nokkuð umdeildur og hafi stækkað skólann um of. Nemendum var í dag tilkynnt að Böðvar Bjarki ætli að stíga til hliðar og binda þeir vonir við að skólahald geti hafist í næstu viku. Ekki náðist í Böðvar Bjarka Pétursson við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Innlent Brutust inn en gripu í tómt Innlent Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús Erlent Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Erlent Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Innlent Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Innlent Pútín heimsækir Kim Erlent Mckellen heill á húfi Erlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent Fleiri fréttir Brutust inn en gripu í tómt Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Kringlan lokuð til fimmtudags Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Sjá meira