Tónlist

Með teknó- og þungarokksplötu á teikniborðinu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Sala á nýjustu plötu Mugison af heimasíðu hans fór vel af stað um helgina en rúmlega 500 stykki seldust á tveimur dögum eftir að opnaði fyrir sölu kl. 15 á föstudag. Mugison greindi frá þessu í útvarpsþættinum Vasadiskó á sunnudag þar sem hann frumflutti einnig tvö lög af plötunni. Þau hétu Áfall, rokkari er fæddist eftir áhyggjur eiginkonu hans á svimaköstum er popparinn fær eftir löng heit böð, og Kletturinn sem hlýtur að verða næsti slagari af plötunni.

Í viðtalinu greindi Mugison einnig frá því að hann væri í raun með tvær aðrar plötur á teikniborðinu. Hins vegar rafræna plötu er hann er langt kominn með en þar fær sérsmíðað hljóðfæri hans Mír-strument að njóta sín til fullnustu. Hin platan hefur aftur á móti vinnuheitið "Mugi-metall" og mun innihalda níðþunga metaltóna, ef hún verður nokkurn tímann kláruð.

"Ég og Addi trommari erum alltaf að hvetja hvorn annann áfram yfir bjórglasi á túrum að gera þyngstu metalplötu Íslandssögunnar," sagði Mugison. "En svo yfirleitt daginn eftir minnumst við ekkert á það meira. Ég hef verið að safna lagahugmyndum á hana í möppu á tölvunni minni. Upptökur af gítarriffum og öðru sem mig langar til þess að þróa í þá átt."

Mugison heldur útgáfutónleika sína fyrir Haglél í Fríkirkjunni á laugardag.

Fylgist með Vasadiskó á Fésbókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×