Erlent

Obama vottar Norðmönnum samúð sína

Obama ræddi við fréttamenn um atburðina í Noregi eftir fund sinn með John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, í Hvíta húsinu. Mynd/AP
Obama ræddi við fréttamenn um atburðina í Noregi eftir fund sinn með John Key, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, í Hvíta húsinu. Mynd/AP Mynd/AP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey.

Að minnsta kosti sjö manns féllu og tugir særðust í sprengjuárás á stjórnarráðshverfi Oslóar í Noregi í dag. Þá er talið að allt að 30 séu látnir eftir skotárás á eyjunni Útey seinnipartinn í dag. Þar fór fram árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins.

William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, og Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hafa fordæmt árásirnar. Rasmussen segir að aðildarríki NATO öll sem eitt standa með Norðmönnum á þessum erfiðu tímum.


Tengdar fréttir

Sprenging í Osló

Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða.

Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló

"Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma.

Forsætisráðherra Noregs í felum

Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni.

Óttast að sprengja sé í Útey

Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið.

Mikill ótti í Osló

Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk.

Allt að 30 myrtir í Útey

Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig.

Óttast að fjórir hafi farist í skotárásinni

Óttast er að hið minnsta kosti fjórir fórust í skotárás í sumarbúðum í Utøya í Noregi nú um klukkan fjögur að íslenskum tíma. Minnst fimm manns eru særðir eftir árásina, segir norska ríkisútvarpið. Lögreglan hefur ekki staðfest tölu látinna.

Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt.

Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni

Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna.

Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn

Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky.

Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×