Innlent

29 fíkniefnamál á Eistnaflugi

Frá Eistnaflugi árið 2008
Frá Eistnaflugi árið 2008
Tuttugu og níu fíkniefnamál komu upp á þungarokkshátíðinni Eistnaflug sem haldin var í Neskaupsstað nú um helgina, en í öllum tilfellum var um að ræða óverulegt magn efna sem ætluð voru til neyslu.

Þrír voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og sextán stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur. Þá var mál upplýst þar sem stolin bifreið hafði lent utan vegar.

Af 152 bókuðum verkefnum hjá lögreglunni á Eskifirði vikuna 3.-11. júlí komu 59 þeirra upp í tengslum við Eistnaflug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×