Íslenski boltinn

Bjarni: Höfðum yfirhöndina allan leikinn

Stefán Árni Pálsson á KR-velli skrifar
„Þetta var hörkuleikur og sennilega frábær skemmtun," sagði Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, eftir leikinn.

„Við höfðum yfirhöndina nánast allan tímann og gerðum Keflvíkingum mjög erfitt fyrir með að halda boltanum vel innan liðsins".

„Í lokin hleypum við þeim allt of mikið inn í leikinn með smá klaufamistökum inn í okkar eigin vítateig, en samt nokkuð öruggur sigur fannst mér. Við vildum endilega ná að skora þriðja markið í byrjun síðari hálfleiks svona til að geta andað örlítið léttar. Þetta er auðvita bikarkeppni og því settu þeir allt í sóknina síðasta korterið, en við náðum að standa pressuna vel".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×