Íslenski boltinn

Sveinbjörn: Ætlum okkur alla leið

Stefán Árni Pálsson á Valbjarnarvelli skrifar
„Við erum komnir í 8-liða úrslit og þetta gerist vart betra," sagði markaskorarinn, Sveinbjörn Jónasson, eftir sigurinn í kvöld. Þróttur slóg Fram útúr Valitor-bikarnum eftir að hafa unnið þá 3-1 á Valbjarnarvelli.

„Við bjuggumst við þeim ákveðnum í byrjun leiks og því lágum við nokkuð til baka, en ætluðum okkur að beita skyndisóknum. Þetta gekk allt fullkomlega upp og við náðum að skora tvö mörk í fyrri hálfleik. Manni líður hvergi betur en á vítapunktinum, þar er gott að vera," sagði Sveinbjörn sem skoraði tvö örugg mörk úr vítum áður en hann kláraði leikinn fyrir Þróttara í síðari hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×