Íslenski boltinn

Kristján: Slæmt að fá á sig þessar vítaspyrnur

Stefán Árni Pálsson á Valbjarnarvelli skrifar
„Ég er bara virkilega svekktur," sagði Kristján Hauksson, fyrirliði Fram, eftir tapið gegn Þrótti í kvöld.

„Það var slæmt að fá á sig þessar vítaspyrnur, en ég held að það hafi verið réttur dómur í báðum tilvikum. Við stjórnuðum samt leiknum allan tíman þrátt fyrir að vera einum færri, en það var ekki að sjá á vellinum að við værum fámennir. Við þurftum að sækja í síðari hálfleiknum og þá opnaðist vörn okkar of mikið þegar við fáum á okkur þriðja markið, en ég vill meina að við hefðum átt að koma í veg fyrir það," sagði Kristján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×