Íslenski boltinn

Hallur: Ætlum okkur langt í þessu móti

Stefán Árni Pálsson á Valbjarnarvelli skrifar
„Leikurinn spilaðist alveg eins og við vildum," sagði Hallur Hallsson, fyrirliði Þróttar, eftir sigurinn á Fram í kvöld.

„Við ætluðum að liggja til baka og loka á þá, keyra svo hratt í bakið á þeim og það gekk fullkomlega upp".

„Það hefur verið ákveðið vandamál hjá okkur í allt sumar að halda áfram allan leikinn og detta ekki of mikið til baka þegar við komumst í góða stöðu".

„Það voru allir búnir að afskrifa okkur langt fyrir mót en við vitum alveg hvers megnugir við erum og ætlum að gera góða hluti í þessari keppni".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×