Fótbolti

Eyjólfur: Ekki ákjósanlegt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar
Eyjólfur Sverrisson var vitanlega ekki ánægður þegar ljóst varð að æfing U-21 landsliðsins í morgun gat ekki farið fram eins og áætlað var.

Það hefur mikið rignt í Álaborg síðan í gærkvöldi og völlurinn á floti. Engu að síður á að reyna að æfa síðdegis.

Landsliðið ætlaði einnig að æfa í gærkvöldi en þeirri æfingu var einnig aflýst þar sem að för hópsins til Danmerkur seinkaði vegna verkfallsaðgerða flugvirkja Icelandair í gærmorgun.

„Þetta er ekki ákjósanlegt fyrir okkur enda höfum við ekki margar æfingar til að skerpa á okkar leik og fara yfir þau atriði sem við viljum hafa á hreinu," sagði Eyjólfur en viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.

„Það eru nokkur atriði sem við viljum hafa á hreinu - í vörn, sókn og föst leikatriði. Við verðum því að pakka þessu á færri æfingar og vera skipulagðir."

Landsliðið kom seint í gærkvöldi til Álaborgar. Til stóð að fljúga frá Kaupmannahöfn en vegna seinkunnar á fluginu frá Keflavík missti hópurinn af tengifluginu.

Við tók því sex tíma rútuferð til Álaborgar og voru leikmenn þreyttir í morgun að sögn Eyjólfs.

„Já, þeir voru nokkuð þreyttir í morgun og nú eru tveir orðnir veikir," sagði hann og átti við þá Gylfa Þór Sigurðsson og Kolbein Sigþórsson. „Það er einhver smá pest í þeim en ég held að það sé ekkert alvarlegt og að það gangi fljótt yfir."

„Það er líka þess vegna sem ég tel það ekki hentugt fyrir þá að fara út í svona veður. Ég vil heldur ekki að þetta smitist út."

Hann segir þó mikla tilhlökkum ríkja í hópnum fyrir fyrsta leik Íslands á mótinu en það verður gegn Hvíta-Rússlandi á laugardaginn.

„Strákarnir eru staðráðnir í að sýna sitt rétta andlit og vera Íslandi til sóma."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×