Lífið

Friðrik Dór kýldi besta vin sinn fyrir að standa á skónum hans

Hlustendaverðlaun FM 957 fara fram með pompi og prakt næsta laugardag í Hörpu. Upphitun fyrir hátíðina hefur staðið yfir alla vikuna og hefur útvarpsmaðurinn Brynjar Már kallað til sín fjöldan allan af tónlistarmönnum sem koma fram og eru tilnefndir á laugardaginn.

Þeirra á meðal er söngvarinn Friðrik Dór sem kom í heimsókn og lék á alls oddi eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir ofan.

Hlustendaverðlaunin verða í beinni útsendingu á hér á Vísi og á FM 957 á laugardaginn og hefst útsendingin klukkan 21.

Enn er hægt að kjósa í Hlustendaverðlaununum og er keppnin orðin æsispennandi. Taktu þér tvær mínútur og kjóstu hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×