Innlent

Sex milljónum varið í kaup á svifryksmæli

Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir að Umhverfisstofnun hafi að undanförnu lagt áherslu á að mæla eftir fremsta megni styrk svifryks á svæðum sem orðið hafa fyrir öskufalli í nágrenni Eyjafjallajökuls.
Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir að Umhverfisstofnun hafi að undanförnu lagt áherslu á að mæla eftir fremsta megni styrk svifryks á svæðum sem orðið hafa fyrir öskufalli í nágrenni Eyjafjallajökuls. MYND/Vilhelm

Sex milljónum króna verður varið til kaupa og uppsetningar á sjálfvirkum mæli til að mæla svifryk á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra þess efnis á fundi í morgun.

Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir að Umhverfisstofnun hafi að undanförnu lagt áherslu á að mæla eftir fremsta megni styrk svifryks á svæðum sem orðið hafa fyrir öskufalli í nágrenni Eyjafjallajökuls. „Einnig hefur stofnunin mælt tilteknar gastegundir á áhrifasvæðinu. Búnaður til slíkra mælinga er af skornum skammti hér á landi en stofnunin hefur flutt á svæðið mæli sem stofnunin hefur haft staðsettan á Akureyri og annan mæli sem hún fékk að láni tímabundið hjá Reykjavíkurborg."

Umrætt svæði er hins vegar svo stórt að fleiri mæla þarf til að sinna þessari vöktun svo vel sé. „Sóttvarnalæknir og Ríkislögreglustjórinn hafa tekið undir með Umhverfisstofnun um mikilvægi þess að vöktun á svifryki verði aukin," segir að endingu.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×