Jól

Prins Pólokökur

 

 

Þessa uppskrift sendi Þórunn Friðriksdóttir Vísi:



250gr sykur

3 egg

400gr smjörlíki

8 prins póló, saxað

hálf tsk hjartasalt

1 tsk vanilludropa

500gr hveiti

Sykur, egg og smjörlíki er hrært saman. Síðan er öllu öðru blandað varlega samanvið, mótar litlar kökur og svo bakað við 200 gráður í 13-15 mín.

Hrikalega góðar kökur.






×