Innlent

Samfylkingin bíður afhroð í Hafnarfirði

Yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnunina myndi Samfylkingin tapa tveimur bæjarfulltrúum, fengi fimm bæjarfulltrúa, en er með sjö í dag. Ellefu bæjarfulltrúar sitja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnunina myndi Samfylkingin tapa tveimur bæjarfulltrúum, fengi fimm bæjarfulltrúa, en er með sjö í dag. Ellefu bæjarfulltrúar sitja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Samfylkingin missir meirihluta sinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í komandi sveitarstjórnarkosningum, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi.

Samfylkingin fengi 39,7 prósent atkvæða í Hafnarfirði yrði gengið til atkvæða nú, samkvæmt könnuninni. Fylgi flokksins hrynur um fimmtán prósentustig frá kosningunum 2006, þegar flokkurinn fékk stuðning 54,7 prósenta kjósenda.

Yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnunina myndi Samfylkingin tapa tveimur bæjarfulltrúum, fengi fimm bæjarfulltrúa, en er með sjö í dag. Ellefu bæjarfulltrúar sitja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Sjálfstæðisflokkurinn nýtur nú stuðnings 34,9 prósenta af þeim sem afstöðu tóku í könnuninni, en fékk 27,3 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Aukningin er 7,6 prósentustig. Flokkurinn myndi bæta við sig einum bæjarfulltrúa í kosningum samkvæmt könnuninni, fengi fjóra en er með þrjá í dag.

Alls sögðust 18,5 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni myndu kjósa Vinstri græna yrði gengið til kosninga í dag. Flokkurinn bætir við sig 6,4 prósentustigum frá kosningunum 2006, þegar 12,1 prósent kjósenda studdi flokkinn. Flokkurinn fengi tvo bæjarfulltrúa samkvæmt könnuninni, en er með einn í dag.

Fylgi Framsóknarflokksins fer úr 3,0 prósentum í kosningunum í 6,9 prósent samkvæmt könnuninni. Flokkurinn myndi ekki ná inn manni yrði það niðurstaða kosninga.

Hlutfallslega fáir af þeim sem hringt var í tóku afstöðu til spurningarinnar samanborið við aðrar kannanir Fréttablaðsins. Aðeins 47,3 prósent voru tilbúin til að gefa upp afstöðu til ákveðins stjórnmálaflokks. Það eykur verulega skekkjumörkin í könnuninni.

Hringt var í 800 íbúa í Hafnar­firði miðvikudaginn 28. apríl. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri.

Spurt var:

Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag?

Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa?

Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Alls tóku 47,3 prósent afstöðu til spurningarinnar.

brjann@frettabladid.is







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×