Innlent

Garðbæingar halda samstöðufund

Frá Garðabæ. Mynd tengist frétt ekki beint.
Frá Garðabæ. Mynd tengist frétt ekki beint.

Um 70 manns ætla að mæta í Aratún í Garðabæ í kvöld og sýna þeim sem hafa orðið fyrir ofbeldi frá nágrönnum sínum stuðning. Á Snjáldurskinnu segir að fundurinn verður haldinn fyrir utan hús þeirra sem fyrir ofbeldinu urðu til að sýna þeim stuðning. „Hann er ætlaður til að sýna það svart á hvítu að samfélagið sættir sig ekki við hegðun eins og þau urðu fyrir," segir á síðunni.

Fólkið ætlar að hittast í Aratúninu klukkan níu en tekið er fram á síðunni að allt muni fara friðsamlega fram og ekki verður farið inn á lóð hins meinta árásarmanns. „Mætum öll og sýnum stuðning," segir að lokum.

Hægt er að sjá síðuna hér.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×