Innlent

Tólf þotur fastar á Keflavíkurflugvelli

Fleiri hundruð manns urðu strandaglópar á Keflavíkurflugvelli eftir að vellinum var óvænt lokað í nótt vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli.
Fleiri hundruð manns urðu strandaglópar á Keflavíkurflugvelli eftir að vellinum var óvænt lokað í nótt vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli. Mynd/Teitur Jónasson
Icelandair hefur fellt niður allt flug síðdegis í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar, en ekkert var flogið í morgun vegna þess að vellinum var lokað í nótt. Ekkert innanlandsflug er heldur um Reykjavíkurflugvöll og tólf farþegaþotur eru innilokaðar á Keflavíkurflugvelli.

Fleiri hundruð manns urðu strandaglópar á Keflavíkurflugvelli eftir að vellinum var óvænt lokað í nótt vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli. Reykjavíkurflugvelli var lokað um leið. Brottför sjö véla Icelandair til Evrópu hafði verið flýtt til klukkan fimm í nótt, en völlurinn lokaðist fyrir þann tíma. Vélarnar eru því fastar á vellinum ásamt fimm öðrum vélum frá Icelandair og Iceland Express.

Þrjár vélar frá Bandaríkjunum lentu á Akureyri undir morgun og fóru farþegar úr þeim í rútubílum til Reykjavíkur. Vélarnar eru þar enn og verður flogið tómum til Keflavíkur um leið og völlurinn verður opnaður á ný. Icelandair gerir ráð fyrir að allt flug féllagsins verði samkvæmt áætlun á morgun og verða farin aukaflug til nokkurra áfangastaða.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×