Steingrímur Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir: Tökum næsta skref Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir skrifar 27. maí 2010 06:00 Í sveitarstjórnarkosningunum á laugardaginn hafa Íslendingar tækifæri til að stíga næsta skref í uppgjöri sínu við þá stjórnmálastefnu og flokka sem leiddu af sér hrunið. Þessar kosningar eru ekki síður mikilvægar en þær sem fram fóru fyrir rúmu ári, þá í kjölfar efnahagshrunsins og uppreisnar almennings gegn sitjandi valdhöfum. Sú krafa sem almenningur setti fram í þeim kosningum um róttækar breytingar og heiðarleg stjórnmál þarf líka að heyrast á laugardaginn. Á því rúma ári sem við Vinstri græn höfum setið í ríkisstjórn hefur stærsta og erfiðasta verkefnið verið að taka til eftir óstjórn Sjálfstæðisflokksins og leggja grunn að nýju samfélagi sem hefur háleitari markmið en að „græða á daginn og grilla á kvöldin". Þetta verkefni bíður einnig nýrra sveitarstjórna um allt land að loknum kosningum. Þar þarf að skapa traust og leggja grunn að nýju samfélagi ekki síður en á landsvísu. Við Vinstri græn leggjum nú sem fyrr áherslu á heiðarlega og málefnalega kosningabaráttu. Gagnrýni okkar á ríkjandi stjórnmálaviðhorf góðærisáranna undirstrikar að hægt er að treysta pólitískri sýn flokksins og að hún geti reynst okkur verðmæt í þeim erfiðu verkefnum sem fram undan eru. Fyrir síðustu alþingiskosningar sögðum við kjósendum réttilega að bæði þyrfti niðurskurð og tekjuöflun til að takast á við vanda landsins. Aðrir flokkar reyndu að spinna sig út úr vandanum en í alþingiskosningunum 2009 virkaði spuninn ekki lengur. Fólk vildi heiðarleg stjórnmál. Ekki má heldur gleymast að mikilvægar ákvarðanir sem hafa víðtæk áhrif eru teknar í sveitarstjórnum. Nærtæk dæmi eru ákvarðanir bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og borgarstjórnar Reykjavíkur á kjörtímabilinu sem leiddu til þess að þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins, HS Orka, hefur farið úr samfélagslegri eigu í hendur kanadíska fyrirtækisins Magma Energy. Þá eru mörg helstu náttúruverðmæti Íslendinga og valdið til að ráðstafa þeim í höndum einstakra sveitarfélaga. Aðkoma Vinstri grænna að sveitarstjórnum landsins er því afar mikilvæg svo að ekki verði gerð fleiri afdrifarík mistök á sveitarstjórnarstiginu. Nú hefur almenningur tækifæri til að leggja gróðahyggjuna endanlega á hilluna og einbeita sér að því að verja velferð og náttúru. Í þeim efnum eru Vinstri græn öflugur bandamaður. Tökum næsta skref að nýju og betra samfélagi á laugardaginn. Kjósum Vinstri græn. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Bakslag í streymi Silja Snædal Drífudóttir Skoðun Hvernig forseta vilt þú? Valdís Arnarsdóttir Skoðun Hver er pælingin? Ásgeir Brynjar Torfason Skoðun Tímaskekkja á 21. öldinni Valerio Gargiulo Skoðun Sögufölsun eytt í kyrrþey Hjörtur Hjartarson Skoðun Spurðu fólkið Halla Tómasdóttir Skoðun Hvar er eldhúsglugginn? Elsa Ævarsdóttir Skoðun Satt og logið Bryndís Schram Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon Skoðun Vopn, sprengjur og annað eins Árný Björg Blandon Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig forseta vilt þú? Valdís Arnarsdóttir skrifar Skoðun Spurðu fólkið Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Vopn, sprengjur og annað eins Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Hvar er eldhúsglugginn? Elsa Ævarsdóttir skrifar Skoðun Bakslag í streymi Silja Snædal Drífudóttir skrifar Skoðun Tímaskekkja á 21. öldinni Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hver er pælingin? Ásgeir Brynjar Torfason skrifar Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir skrifar Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Framtíð innri markaðarins Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Satt og logið Bryndís Schram skrifar Skoðun Alþjóðlegi leiðsöguhundadagurinn Sigþór U. Hallfreðsson skrifar Skoðun Framsókn leggst ekki í duftið Guðmundur Birkir Þorkelsson skrifar Skoðun Að dreyma um alheim góðvildar Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar þú ert báknið Gabríel Ingimarsson skrifar Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Brautryðjandinn Baldur Þóra Björk Smith skrifar Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Sjá meira
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar