Pálmi kaupir sér frið frá skilanefnd Glitnis 6. júlí 2010 18:30
Pálmi Haraldsson hefur lagt ríflega hálfan milljarð króna í reiðufé inn á reikning skilanefndar Glitnis til að komast hjá því að eignir hans verði kyrrsettar. Flugfélagið Iceland Express og breska flugfélagið Astreus sem m.a. leigir þotur til þess fyrrnefnda, voru flutt frá Fons, sem var í eigu Pálma Haraldssonar, yfir til Northern Travel Holding, dótturfélags Fons árið 2006. Stuttu eftir bankahrunið voru félögin svo seld til eignarhaldsfélagsins Fengs, sem einnig er í eigu Pálma. Í apríl á síðasta ári var Fons úrskurðað gjaldþrota. Kröfur í búið nema um 40 milljörðum króna. Nupur Holding SA, er móðurfélag Fengs. Kaupþing í Lúxemborg stofnaði félagið fyrir Pálma og er það líkt og önnur félög sem Kaupþing stofnaði þar í landi stýrt af þremur félögum á Tortóla, að því er fram kemur í lögbirtingarblaðinu í Lúxemborg. Samkvæmt heimildum fréttastofu krafðist skilanefnd Glitnis kyrrsetningar á þessu félagi en skilanefndin stefndi þeim Pálma, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Lárusi Welding fyrr í sumar og krefst 6 milljarða króna í skaðabætur. Er þeim gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína til að hagnast á því persónulega og hafa í leiðinni valdið bankanum fjártjóni. Samkvæmt heimildum fréttastofu vildi Pálmi ekki að félagið yrði kyrrsett og bauðst því til að leggja fram reiðufé í staðinn, alls ríflega hálfan milljarð króna. Á það var fallist þar sem reiðufé þykir betri trygging en félagið. Pálmi vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa náði af honum tali í dag.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira