Matur

Kornflexsmákökur

Kornflexkökur eru lostæti.
Kornflexkökur eru lostæti.

„Ég og dóttir mín erum að baka þessar smákökur. Hef ekki bakað þessar áður en mér skilst að kökurnar séu algjört lostæti," skrifaði Ina Hrund Isdal en hún var svo góð að gefa okkur þessa kornflexsmáköku uppskrift á Facebooksíðu Lífsins.

Kornflexsmákökur

4 eggjahvítur

2 bollar púðursykur > stífþeytt.

4 bollar kornflex

2 bollar af kókosmjöli blandað saman við

100 gr af smátt söxuðu suðusúkkulaði

1 tsk af vanilludropum



Sett með teskeið á bökunarpappirsklædda plötu í smá toppa.

Bakað við 150 gráðu hita í um það bil 15 mínútur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×