Innlent

Tillögur um bönn ekki úthugsaðar

helgileikur í öskjuhlíðarskóla Þeir nemendur sem vilja fara í heimsókn í kirkju á ári hverju og setja upp helgileik í skólanum.mynd/jóhann
helgileikur í öskjuhlíðarskóla Þeir nemendur sem vilja fara í heimsókn í kirkju á ári hverju og setja upp helgileik í skólanum.mynd/jóhann

Formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur segir margt of óljóst í tillögum meirihluta ráðsins um breytingar á samstarfi kirkju og skóla í Reykjavík.

„Það verður ekki hróflað við neinu sem hefur verið órjúfanlegur hluti af íslenskri menningu,“ segir Margrét Sverrisdóttir, formaður mannréttindaráðs. Hún segir að ekki sé verið að gera aðför að íslenskri menningu eða hátíðarhaldi almennt. Mögulega hafi tillögurnar um að hætta sálmasöng í skólum ekki verið hugsaðar til enda. Margir þeir trúarlegu sálmar sem sungnir eru í kringum jól séu vissulega hluti af íslenskri hefð og menningu.

„Líklega þarf að skilgreina íslenska menningu frekar,“ segir hún og bendir á að til að mynda sé ekki hægt að taka Jesú úr jólunum, þó að fræðsla barnanna eigi ekki að koma frá prestum.

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, tekur undir orð Margrétar og segir tillögurnar ekki hafa neinar breytingar á hátíðarhaldi í skólum í för með sér.

„Það er ekki verið að taka afstöðu til helgihalds og trúarhátíða sem eru til staðar í íslensku samfélagi. Jólaballið, jólaföndrið, skreytingar, söngvar og aðventan eru til staðar í samfélaginu og auðvitað heldur það áfram,“ segir Oddný. Hún vill þó taka alfarið fyrir heimsóknir presta í leik- og grunnskóla og ferðir barna í trúarlegum tilgangi í kirkjur og aðrar trúarlegar stofnanir á skólatíma.

Nemendur Öskjuhlíðarskóla heimsækja kirkju um hver jól, og segist Jóhann Kristjánsson skólastjóri Öskjuhlíðarskóla harma það ef tillögurnar nái fram að ganga.

„Við þyrftum vissulega að hlíta því. En teljum það afturför og hörmum það,“ segir Jóhann.

sunna@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×