Innlent

Laugavegur opinn öllum nema bifreiðum um helgina

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hluta af Laugavegi og Skólavörðustíg ásamt Bankastræti verður breytt í göngugötur um helgina í tilefni af HönnunarMars 2010. Þetta er þáttur í Grænum skrefum í Reykjavík. Í sumar er ætlunin að nota öll þau tækifæri sem gefast til að gera miðborgina eftirsóknarverða fyrir gangandi, að fram kemur í tilkynningu frá umhverfis og samgöngusviði borgarinnar.

Hönnunarmiðstöðin og Félag íslenskra landslagsarkitekta óskaði í samráði við Bílastæðasjóð og Miðborgina okkar eftir þessari lokun um helgina. Markmiðið er meðal annars að vekja athygli á að fleiri en ökumenn geti notið miðborgarinnar. Gangandi vegfarendur geta nú lagt Laugaveginn undir sig og verða lausir við mengun, hávaða og hættu.

Bílastæðasjóður gaf leyfi til að umbreyta stöðumælum í gerviblóm á ákveðnu svæði í miðborginni. Blómainnsetningin endar við Lækjartorg þar sem blómabreiða verður mynduð á upphækkaða grasfletinum með lerkistaura í stað stöðumæla. Skilaboðin eru að bíllinn er of þurftafrekur í Reykjavík. Göturýmið má að mati landslagsarkitektana nýta betur sem dvalarsvæði fólks enda líta margir á Laugaveg og nágrenni sem menningarsvæði.

Blómin opnast á Lækjartorgi í dag klukkan 17 við lúðraþyt. Verkið er hannað af Dagnýju Bjarnadóttur og framleitt í Hlutverkasetri fyrir Félagi íslenskra landslagsarkitekta. Þau eru gerð úr endurunnu heyrúlluplasti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×