Innlent

Línurnar í borginni lítt teknar að skýrast

Oddvitarnir fengu stuttan tíma til að gera grein fyrir sjónarmiðum sínum, og fannst Jóni Gnarr greinilega að Dagur B. Eggertsson færi full frjálslega með tíma fundargesta. Dagur grínaðist með það sjálfur að hann væri ekki þekktur fyrir að vera langorður, og uppskar hlátur fundargesta.Fréttablaðið/Anton
Oddvitarnir fengu stuttan tíma til að gera grein fyrir sjónarmiðum sínum, og fannst Jóni Gnarr greinilega að Dagur B. Eggertsson færi full frjálslega með tíma fundargesta. Dagur grínaðist með það sjálfur að hann væri ekki þekktur fyrir að vera langorður, og uppskar hlátur fundargesta.Fréttablaðið/Anton

Fréttaskýring: Hvernig leggja oddvitar framboðanna línurnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar?

Fundargestir á opnum fundi með oddvitum allra framboða fyrir borgarstjórnarkosningarnar þann 29. maí næstkomandi héldu að þeir hefðu orðið vitni að tímamótum í borgarstjórnar­pólitíkinni í gær.

„Ég sagði strax í upphafi að ef þetta [framboð Besta flokksins] yrði leiðinlegt myndi ég bakka út úr þessu,“ sagði Jón Gnarr, oddviti grínframboðsins Besta flokksins, í framsögu sinni á fundinum, sem fram fór í Háskólanum í Reykjavík.

„Þegar fór að síga á þetta fóru að renna á mig tvær grímur. Meiri alvara fór að færast í þetta og leiðindi. Síðustu dagar eru búnir að vera mjög erfiðir. Eftir vandlega umhugsun hef ég ákveðið að draga framboð Besta flokksins til baka í sveitarstjórnarkosningunum.“

Besti flokkurinn mældist með stuðning 23,4 prósenta kjósenda í nýlegri könnun Fréttablaðsins og sló þögn á salinn við tíðindin. Nokkrum andartökum síðar sagði Jón: „Djók!”

Það kom viðstöddum væntanlega lítið á óvart að oddviti Besta flokksins hæfi mál sitt með góðum brandara. Framboðið er enda grínframboð, þó að meiri alvara hafi raunar farið að færast yfir málflutning Jóns síðustu daga.

En það var ekki bara ólíkindatólið Jón Gnarr sem var samur við sig á þessum fyrsta opna fundi oddvita allra framboða í borginni. Oddvitar stóru flokkanna voru einnig á kunnuglegum slóðum í málflutningi sínum.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóri, lagði eins og áður áherslu á samstarf allra flokka. Hún sagðist ekki gefa út stór loforð en lofaði þó að gera eins vel og hægt er við núverandi aðstæður.

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagði flokkinn leggja áherslu á að finna leiðir út úr kreppunni. Leggja verði áherslu á þjónustu við þá sem minna mega sín.

Kosningarnar munu snúast um hugmyndafræði, sagði Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna. Eins og flestir á fundinum lagði hún áherslu á að standa vörð um velferðarmálin á erfiðum tímum.

Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokksins, sagði áherslur flokksins liggja á sviði velferðarmála og atvinnumála. Hann sagði hugmynd Hönnu Birnu um nokkurs konar „þjóðstjórn“ allra flokka eftir kosningar góðra gjalda verða, en verði það raunin sagði hann að ópólitískur borgarstjóri yrði að leiða slíka stjórn.

Fulltrúar smærri framboðanna fengu kærkomið tækifæri til að gera grein fyrir sínum stefnumálum á fundinum í gær.

Helga Þórðardóttir, oddviti Frjálslynda flokksins, sagði Frjálslynda flokkinn ávallt hafa barist gegn sérhagsmunagæslu. Stefnumál flokksins séu fyrst og fremst að standa vörð um velferðarmálin í borginni. Til að afla fjár verði að efla útflutnings­fyrirtæki og framleiðslu.

Ólafur F. Magnússon, oddviti framboðs Óháðra, hvatti fundargesti til að skoða það sem borgarfulltrúar hafi gert undanfarin ár, ekki orðagjálfur á fundum. Hann sagði stjórnarsamstarf sitt með Sjálfstæðisflokknum hafa náð að festa flugvöllinn og gömlu borgina í sessi, en vandaði hvorki öðrum borgarfulltrúum né fjölmiðlum kveðjurnar.

Nýverið var tilkynnt um nýtt framboð fyrir kosningarnar í vor, Reykjavíkurframboðið. Baldvin Jónsson, oddviti framboðsins, segir það óháð framboð um hagsmuni borgarbúa. Stefnumál framboðsins eru öðru fremur að þétta byggð og draga með því úr umferð. Framboðið vill í því skyni flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni, og nýta landið undir íbúðabyggð.

Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, sagði borgina leiðin­lega og óbarnvæna, aðgengi fyrir fótgangandi og fatlaða væri lélegt og strætókerfið súrrealískt. Hann tók raunar ekki fram að þessu vildi Besti flokkurinn breyta, en lesa mátti það úr orðum hans.

brjann@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×